Ástandsskoðun
og lagnamyndun
Við bjóðum gjaldfrjálsa lagnaskoðun, ástandsmyndun og bilanaskoðun. Við myndum þar sem aðstæður leyfa, sýnum þér myndirnar á staðnum og förum yfir næstu skref.
Sérhæfing í frárennslislögnum
Við bjóðum bæði lagnafóðrun og lagnaskipti. Þannig getum við lagt til þá lausn sem hentar þér best, út frá ástandi lagnanna, raski og kostnaði.
Hvort sem það er fóðrun, endurnýjun eða blanda af hvoru tveggja, byrjum við á gjaldfrjálsri skoðun og förum yfir valkostina með þér.
Bóka fría skoðunHöfuðborgarsvæðið og nágrenni

Lagnaskoðun, ástandsmyndun og bilanaskoðun
0 kr.Gjaldfrjáls skoðun
Frí skoðun er afmörkuð frumathugun á einum frárennslisstamma, allt að 40 mínútur á staðnum. Myndað er um fyrirliggjandi aðgang þar sem aðstæður leyfa. Skoðunin er ekki heildarúttekt á lagnakerfi hússins.
Við sýnum þér myndir af lögnunum á staðnum og förum yfir ástandið með þér. Engin skrifleg skýrsla eða samantekt fylgir skoðuninni.
Frí skoðun er afmörkuð frumathugun á einum frárennslisstamma, allt að 40 mínútur á staðnum. Myndað er um fyrirliggjandi aðgang þar sem aðstæður leyfa. Skoðunin er ekki heildarúttekt á lagnakerfi hússins. Akstur innan höfuðborgarsvæðisins er innifalinn. Myndefni er sýnt á staðnum en er ekki afhent.
Ekkert skoðunargjald er innheimt þótt ekki sé hægt að mynda. Hreinsun, stíflulosun, losun salernis og/eða salernisskálar og opnun veggja eða gólfa eru ekki innifalin. Viðbótarvinna, ítarlegri úttekt og akstur utan höfuðborgarsvæðisins eru verðlögð og samþykkt sérstaklega áður en til þeirra kemur.
Sæki upplýsingar…
Þjónustan okkar
Við bjóðum gjaldfrjálsa lagnaskoðun, ástandsmyndun og bilanaskoðun. Við myndum þar sem aðstæður leyfa, sýnum þér myndirnar á staðnum og förum yfir næstu skref.
Við fóðrum stamma, greinar innanhúss og frárennslislagnir undir plötu, þar sem ástand og aðstæður leyfa.
Við gerum við eða skiptum út lögnum og sjáum um brot, lagnavinnu og múrverk. Umfang og frágangur koma fram í tilboði.
Lagnafóðrun
Með lagnafóðrun er fóðring sett inn í núverandi lögn og hert á staðnum. Þar sem aðferðin hentar getur hún dregið úr þörf á að brjóta upp veggi og gólf.
Meiri upplýsingar um lagnafóðrunSvona virkar þetta
Við skoðum lagnirnar án skoðunargjalds, myndum þar sem aðstæður leyfa og sýnum þér myndirnar á staðnum.
Fóðrun, lagnaskipti eða blönduð lausn — valið ræðst af aðstæðum.
Þú færð skýrt umfang, verð og áætlun áður en framkvæmdir hefjast.
Við skipuleggjum verkið, takmarkanir á notkun frárennslis og frágang.
Algengar spurningar
Stammi, einnig kallaður frárennslisstammi eða skólpstammi, er lóðrétt frárennslislögn sem tekur við frárennsli frá tengdum lögnum hússins.
Við lagnafóðrun er fóðring sett inn í núverandi lögn og hert þar. Hún myndar nýtt innra lag og getur gert kleift að endurnýja lögnina án þess að skipta um hana í heild.
Við notum CIPP-fóðrun. Ástand lagnarinnar og aðgengi ráða því hvort aðferðin hentar.
Leki úr frárennslisstamma getur valdið raka, ólykt og skemmdum á veggjum, gólfum og innréttingum. Ef rakinn fær að liggja getur einnig myndast mygla. Skemmdir geta þróast inni í veggjum eða undir gólfum áður en þær verða sýnilegar og orðið umfangsmeiri með tímanum.
Ef þú verður var við leka, rakabletti eða viðvarandi frárennslislykt er skynsamlegt að láta kanna orsökina sem fyrst. Skoðun hjálpar að meta ástandið og hvort viðgerð eða endurnýjun sé nauðsynleg.
Við bjóðum fóðrun á frárennslisstömmum, greinum inni í húsum og frárennslislögnum undir plötu. Hver lögn er metin sérstaklega áður en framkvæmd er ákveðin.
Fóðrun getur dregið úr þörf á broti þar sem hægt er að nýta núverandi lögn. Aðgengi þarf þó að vera til staðar og stundum þarf að opna á afmörkuðum stöðum.
Ef skipta þarf um lagnir getur þurft meira uppbrot. Við förum yfir aðgengi, umfang og frágang áður en þú samþykkir tilboð.
Fyrsta skrefið er gjaldfrjáls skoðun og lagnamyndun þar sem aðstæður leyfa. Við metum ástand, legu og aðgengi lagnanna. Stundum þarf hreinsun eða frekari athugun áður en hægt er að taka endanlega ákvörðun.
Að skoðun lokinni förum við yfir hvort fóðrun, lagnaskipti eða blönduð lausn henti.
Skemmdir eða aðstæður geta kallað á lagnaskipti, til dæmis ef lögn er fallin saman eða þarf að breyta legu hennar. Stundum hentar að skipta um hluta og fóðra aðra.
Við leggjum til lausn út frá skoðun og umfangi verkefnisins.
Verðið fer eftir ástandi, lengd og stærð lagna, aðgengi, undirbúningi og frágangi, ásamt því hvort valin er fóðrun, lagnaskipti eða blönduð lausn.
Lagnaskoðun, ástandsmyndun og bilanaskoðun eru gjaldfrjáls. Skoðunin hjálpar okkur að afmarka verkið og undirbúa tilboð. Við sýnum þér myndir á staðnum; skrifleg skýrsla eða samantekt fylgir ekki skoðuninni. Frekari vinna er verðlögð og samþykkt sérstaklega áður en hún hefst.
Það fer eftir framkvæmdinni og aðstöðu í húsinu. Takmarka getur þurft notkun á salerni, sturtu eða öðrum búnaði sem tengist lögninni, bæði við fóðrun og lagnaskipti.
Við förum yfir hvort hægt sé að búa heima meðan á verkinu stendur, hvaða búnaður verður tímabundið úr notkun og áætlaðan verktíma. Þetta er skipulagt með þér fyrirfram.
Já, við bjóðum brot, lagnavinnu og múrverk samhliða lagnaskiptum og öðrum framkvæmdum. Nákvæmir verkþættir og frágangur koma fram í tilboðinu.
Næsta skref